Velkomin á heimasíðu tómstunda- og félagsmálafræðinema


Gestabók
Tómstundarspjall

    eldri skrif

    SKRÁNING ER HAFINN Gleðilega páska Yfir 300 manns hafa heimsótt síðuna á einni viku Velkomin

Tómstund

2005-04-08

SKRÁNING ER HAFINN

Skráning er hafinn á skemmtunina þann 16.apríl. Hægt er að skrá sig hér á heimasíðu Tómstundnema eða á með því að senda póst. Það kostar 899 kr að taka þátt, sem hægt er að borga inn á reykning 0111-26-301166 kt.200178-5649 eða í næstu staðarlotu.

Allir nemendur fengu eftirfarandi bréf á khi-addressuna sína;

Landnemar

Það er árið 2098 og plánetan okkar, jörðin er yfirfull af manneskjum. Í marga áratugi hafa vísindamenn reynt að finna leið til að finna húsaskjól og fæðu fyrir fólksfjöldann með misjöfnum árangri. Ekki fyrir löngu fannst önnur pláneta sem ekki er ólík okkar. Vísindamenn vonast til að geta byggt upp þessa plánentu og þannig leyst í leiðinni fólksfjölgunarvandan sem við búum við.

Þú hefur verið valin ásamt um 60 öðrum einstaklingum til að vera ein/nn af frumbyggjum hinnar nýju plánetu. Þetta er krefjandi verkefni sem þarfnast þrautseigu, útsjónarsemi, samkennd, sterka löngun og bjartsýni til að vinna ómetanlegt starf í þágu mannkynsins. Við teljum að þú hafir það sem til þarf. Þú hefur 7 daga til að staðfesta þátttöku þína og greiða þátttökugjald, eða fyrir 15.apríl. Innifalið í því er gjafakassi sem kann að nýtast vel á nýjum stað, veitingar og aðgangur að veislu sem haldin verður eftir uppbygginguna.

Við höfum ákveðið að halda þátttökugjaldinu í lágmarki, aðeins 899 kr.
Skráning er hafin á heimasíðu okkar
www.tomstund.blogspot.com eins geta þátttakendur skráð sig með að senda mail tomstund@hotmail.com .
Lagt verður af stað þann 16. apríl næstkomandi.
Mæting tímanlega klukkan 15:30, upp í kennaraháskóla íslands.
Allar upplýsingar eru á heima síðu okkar
www.tomstund.blogspot.com
Hægt er að senda fyrirspurnir á
tomstund@hotmail.com
Hægt er að greiða inn á reiknig 0111- 26- 301166 kt. 20.01.78-5649(ath. Að setja nafn og kennitölu með og prenta út kvittun)
Einning er hægt borga í næstu lotu.


Listi yfir hluti sem gott er að taka með:
Góð útivistarföt, eftir veðri, sem mega óhreinkast
Sundföt- (þeir sem ekki vilja fara í sund, geta tekið sig til fyrir kvöldið í búningsklefanum)
Góðir skór til að vera í úti
Fínni föt til skiptana fyrir kvöldið og tilheyrandi
Létt nesti fyrir þá sem vilja milli kl. 16.00-19.00 (ath.kvöldmatur í boði)
Sólgleraugu
Skólaskirteini(mjög mikilvægt)
Ef fólk hefur séróskir um tónlist sem spiluð er um kvöldið er gott að taka geisladiska með sér.
Ath. Eftir miðnætti er hópferð niður í bæ fyrir þá sem vilja, þá er gott að hafa penninga, kort og annað sem fólk er vant að nota þegar það fer út að skemmta sér.

Ef þið hafið einhverjar spurningar getið send okkur mail á tomstund@hotmail.com eða fengið upplýsingar hjá Nönnu í síma;845-3793.

ATH: Það verður að vera búið að skrá sig fyrir 15. apríl. Mjög nauðsynlegt upp á veitingar, rútuferð ofl.
Við vonumst til að sjá sem flesta.

posted by Tomstund at 8.4.05 4 comments

|

2005-03-26

Gleðilega páska

Í tilefni páskana er rétt að birta nokkra málshætti;
Enginn er svo nískur að hann tími ekki að spara.
Oft gerist sjaldan nema stundum.
Betra er að ganga fram af fólki en björgum.
Þegar hús náungans brennur hlýnar mörgum um hjartarætur.
Léttara er að sóla sig en skó.
Oft stekkur kókaínneytandinn upp á nef sér.
Illt er að kenna gömlum manni að standa.
Betri er einn fugl í sósu en tveir í frysti.
Illt er að vera svo smávaxinn að ná ekki uppí nefið á sér í bræði.
Blindur maður sér ekki baun, hvað þá annað.
Snörunni kennir hengdur maður.
Betra er að fara í bíó en taugarnar á fólki.
Betra er langlífi en harðlífi.
Hætta skal ástarleik þá hæst hann stendur.
Oft stinga kókaín-neytendur saman nefjum.
Margur sefur yfir sig sem vaknar ekki á réttum tíma.
Oft má lík kjurrt liggja.
Oft byrjar homminn á röngum enda.
Margur hefur farið flatt á hálum ís.
Ekki er nóttin daglegt brauð.
Betra er að vera búlduleitur en fráleitur.
Sjaldan malar kötturinn gull.
Fall er fararheill, sagði línudansarinn.
Heima er best í hófi.
Hinn gráðugi fær aldrei nóg, en allir fá nóg af honum.
Betri er uppgangur en niðurgangur.
Hallgrímskirkja verður ekki byggð á einni öld.
Betri er einn maðkur á öngli en tveir í mysu.
Oft er holdsveikum laus höndin.
Mörg móðirin lifir góðu móðurlífi.
Margur verður ekki róni fyrr en hann er orðin róni.
Betra er að ganga á fjöll en hurðir.
Oftar er maðkur í mysu en maður í messu.
Betra er að standa á eigin fótum en annarra.
Oft hefur kókaínneytandinn eitthvað annað en bein í nefinu.
Oft er grafinn maður dáinn.
Oft er flasa oná fögru skinni.
Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn.
Enginn verður óbarinn boxari.
Oft er dvergurinn í lægð.
Ekki ættu holdsveikir að kasta til höndunum.
Betra er að hvíla undir súð en grænni torfu.
Það er oft deginum ljósara að það er kolniðamyrkur úti.
Sjaldan fellur róninn langt frá flöskunni.
Flasa er skalla næst.
Margur slökkviliðsmaðurinn er eldklár.
Heiðarlegur maður stelur ekki án leyfis.
Illt er að standa uppí nefinu á kókaínneytanda.
Sá sem ekki kann að gelta má hundur heita.
Margur geispar golunni í blankalogni.
Brennt barn forðast að fara úr öskunni í eldinn.
Sjaldan fara sköllóttir í hár saman.
Auðþekktur er alkinn á eyrunum.
Oft kemur bóndinn í opna skjöldu.
Auðveldara er að bera ávöxt en bankalán.
Ekki trúa blindir á ást við fyrstu sýn.
Betra er að ganga of langt en standa í stað.
Mörgum þykir danska hið versta mál.
Margur miljónamæringurinn á ekki baun, bara pening.
Betra er að drepa tímann heldur en sjálfan sig.
Margur væri í spreng ef ekki væri búið að finna upp rennilásinn.
Ekki var Lennon skotin í Yoko, heldur í New York.
Sjaldan er konan reið eftir reið.
Seint nær svertinginn að hvítþvo hendurnar af litarhætti sínum.
Ekki hefði Edison fundið ljósaperuna ef hann hefði ekki kveikt á perunni.
Mörg hreingerningakonan er þrifin í burtu.
Margur homminn kemst í hann kappann.
Oft tekur vændiskonan stórt uppí sig.
Ekki þýðir að byrgja brunninn ef barnið hefur mikið til brunns að bera.
Margur verðurfræðingurinn býr í skúr.

Málshættirnir eru úr bókinni: "Stormur á skeri" eftir Sverrir Stormsker.

posted by Tomstund at 26.3.05 0 comments

|

2005-02-28

Yfir 300 manns hafa heimsótt síðuna á einni viku

Við erum mjög ánægð yfir viðbrögðum hjá tómstundarnemum. Það virðist sem allir hafa séð síðuna, en það væri mjög gaman að fá meiri virkni. Það sem við stefnum að er að hafa mjög virka og skemmtulega síðu fyrir félagslíf tómstundanema.

Við minnum á að þið getið sent okkur myndir, greinar, slóðir eða hvað sem er sem ykkur dettur í hug til að setja á síðuna. Eins ef þið hafið einhverjar skoðanir á hvernig síðan ætti að vera.

Meir um viðburðin:
Við höfum sett fram nokkrar hugmyndir af dagsetningum sem þið getið kosið um, en 12. mars fara tómstundanemar á 2. ári í ferð svo það gengur ekki þann dag. Viðbuðurinn byrjar klukkan 16:00 og verður fram eftir kvöldi og nóttinni fyrir þá sem vilja. Í boði verða léttur kvöldmatur, drykkir og gjafakassi sem þátttakendur geta tekið með sér. Við fengum spurningu um hvort einungis verða áfengir drykkir í boði, en auðvita eru drykkir fyrir alla. Skemmtunin er sniðin þannig að allir geta skemmt sér og í raun verða áfengir drykkir ekki í boði fyrr en seinna um kvöldið, fyrir þá sem vilja.

Tilgangurinn er mynda smá tengsl milli allra tómstundanema, en ég til að mynda hef ekki hugmynd hvernig fólk er á hinum árunum. Okkur finnst svolítið mikilvægt að vita svona c.a. hverjir eru í sama fagi og við, við eigum jú sennilega, einhver okkar, eftir að vinna saman. Fyrir utan það að skemmta okkur ærlega, þá er aldrei að vita hvað maður geti lært.

Við búumst nátturulega við að tómstundanemar sýni hvað í þeim býr með 100% mætingu.

posted by Tomstund at 28.2.05 0 comments

|

2005-02-17

Velkomin

Velkomin á heimasíðu tómstunda- og félagsmálafræðinema.
Hér framvegis verður ýmislegt sem tengist okkur.
Kæru samnemendur, vinsamlegast sendið okkur það sem ykkur langar að setja inn á síðuna, s.s. greinar, myndir, slóðir af áhugaverðum síðum, af ykkar blogg-eða heimasíðum osfr. Þessi síða er partur af viðburði sem verður haldin Laugardaginn 12. mars. Það er komin tími á að sýna hvað býr í tómstunda- og félagsmálafræðinemum. Takið þann dag frá, þið munið ekki sjá eftir því. Frekari upplýsingar berast seinna.

posted by Tomstund at 17.2.05 0 comments

|